28.10.2011 14:30
Íþróttadagurinn
Íþróttadagur Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar var í dag. Margt var í boði í keppninni s.s. fótbolti, blak, handbolti, bandý, hnit, krossgátur, suduko, stafsetning, olsen olsen, púsl, borðtennis, fótboltaspil, spurningakeppni og svo í lokin tóku nemendur þátt í skólahreysti.
Miðstig og unglingastig kepptu sín á milli og voru 9. og 10. bekkur stigahæst og unnu þau bikarinn (Tweety) 7. og 8. bekkur í 2. sæti og miðstig í 3. sæti. Yngsta stig var með keppni á mili þriggja hópa og vann hópur er nefndi sig Kálfarnir. Mikið fjör og góð stemning myndaðist í dag.
Myndir í albúmi.
Hér er mikið hugsað í krossgátunni.
27.10.2011 15:40
Uppskriftir
Kveðja
Eldhúshópurinn.
23.09.2011 13:16
Heimilisfræði 28. sept. - 3. okt.
Súkkulaðikaka
1 ¼ dl hveiti
1 dl sykur
¼ tsk matarsódi
¼ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1 ¼ msk kakó
1 lítið egg
½ dl mjólk
Tæpur ½ dl olía
½ tsk vanilludropar
1. Kveikið á ofninum og stillið hann á 180°C.
2. Allt hráefni sett í skál og hrært saman.
3. Deigið sett í lítið, vel smurt, tertuform.
4. Bakið í miðjum ofni í 15-20 mínútur.
Súkkulaðibráð
½ msk olía
1 ½ msk kakó
1 ½ dl flórsykur
2 msk vatn
¼ tsk vanilludropar
Allt sett saman í skál og hrært saman. Sett á kökubotninn þegar hann hefur kólnað.
16.09.2011 13:07
Heimilisfræði 21. -26. sept.
|
Afmælismúffur |
Aðferð |
|
1 egg |
|
16.09.2011 11:55
Heimilisfræði
Hrísgrjónaréttur
1 dl hrísgrjón
2 dl vatn
1 tsk matarolía
½ tsk salt
1 msk olía
¼ tsk karrí
30 g hvítkál
¼ paprika
1 gulrót
¼ laukur
½ dl rúsínur
2 sneiðar skinka
1. Vatn, hrísgrjón, matarolía og salt sett í pott og látið suðuna koma upp.
2. Skolið, hreinsið og skerið grænmetið niður.
3. Skerið skinkuna í litla bita.
4. Hitið olíu og karrí á pönnu.
5. Steikið grænmeti og rúsínur við vægan hita í 3-5 mín.
6. Bætið þá skinku og soðnum hrísgrjónum saman við.
30.08.2011 14:36
Nokkrar myndir úr Staðarskarðinu

Nokkrar myndir í albúmi.
26.08.2011 12:53
Heimilisfræði 31. ágúst - 5. sept.
Litrík eggjakaka
3 egg
3 msk kalt vatn
¼ tsk salt
1/8 rauð paprika
1/8 græn paprika
2 pylsur
30 - 50 g ostur
25 gr olía
1. Egg, vatn og salt sett saman í skál.
2. Skerið pylsurnar í þunnar sneiðar.
3. Skolið paprikuna og skerið í litla teninga.
4. Rífið ostinn.
5. Setjið olíuna á pönnu og hitið við vægan hita.
6. Steikið pylsusneiðarnar og paprikubitana á pönnunni í smástund.
7. Hellið eggjahrærunni yfir og síðast ostinum.
22.08.2011 14:28
Fyrsti heimilisfræðitími vetrarins
Vöfflur
3 dl hveiti
½ dl heilhveiti
2 tsk lyftiduft
2 msk sykur
¼ tsk salt
½ dl matarolía
2 egg
2 ½ dl mjólk
1 tsk vanilludropar
Allt sett í skál og hrært saman í kekkjalausan jafning. Bakað í vel heitu vöfflujárni.
01.06.2011 15:22
Smíðaverkefni.
Árabátur.
13.04.2011 13:07
Heimilisfræði 5. - 6. bekkjar 11. og 13. apríl
Gómsætt páskakonfekt
5 msk salthnetur
1 msk rúsínur
Tvö handfylli af döðlum (ca.16 stk)
1 msk olía (sesamolía)
2 msk Cashew hnetur
Suðusúkkulaði (það má auðvitað nota hvaða súkkulaði sem er)
Byrjið á því að setja súkkulaðið í vatnsbað. Meðan súkkulaðið er að bráðna eru öll hin efnin sett í blandara. Þegar það er orðið vel maukað eru búnar til kúlur, stærðin fer eftir smekk hvers og eins.
Þegar súkkulaðið er bráðið eru kúlurnar hjúpaðar með því. Gott er að setja kúlurnar í smá stund inn í frysti eða yfir nótt í ísskáp áður en þær eru bornar fram.
05.04.2011 10:23
Heimilisfræði vikuna 4. - 8. apríl
Ítalskt rísottó
½ stk laukur, saxaður
½ rauð paprika, söxuð
½ græn paprika, söxuð
50 g sveppir, sneiddir
1 msk matarolía
2 ½ dl löng hrísgrjón
½ l vatn
1 stk kjúklingateningar
Salt og pipar
1 dl parmesanostur eða annar rifinn ostur
1. Saxið laukinn og paprikuna og sneiðið sveppina.
2. Hitið olíu í potti og léttsteikið grænmetið(paprikuna og sveppina). Takið grænmetið og setjið það á disk.
3. Bætið olíu í pottinn og setjið ósoðin hrísgrjón og laukinn í pottinn, hitið í tvær mín.
4. Hellið vatninu yfir hrísgrjónin og myljið teninginn út í. Sjóðið undir loki í ca. 15 mín. Bætið sveppunum og paprikunni út í og sjóðið þar til grjónin hafa drukkið í sig allan vökvann.
5. Kryddið eftir smekk og blandið ostinum saman við í lokin.
31.03.2011 13:42
Heimilisfræði 28. mars - 1. apríl
Hjónabandssæla
2 dl hveiti
2 dl haframjöl
1 dl púðursykur
½ tsk matarsóti
80 g smjörlíki
1 egg
Aðferð
1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
2. Setjið þurrefnin í hrærivélaskálina. Setjið smjörlíkið saman við og hnoðið með króknum.
3. Setjið eggið saman við og hnoðið.
4. Ef deigið er of þurrt má setja örlítið af mjólk saman við.
5. Skiptið deiginu í 3 hluta og setjið 2 hluta í 12 muffinsform. Eina teskeið af sultu yfir hverja köku og jafnið því sem eftir er að deiginu yfir sultuna.
6. Bakist í 10 - 15 mín.
25.03.2011 13:53
Heimilisfræði vikuna 21.-25. mars
PASTA MEÐ OSTI OG PYLSUBITUM
150 g pastaslaufur eða annað pasta
3 pylsur
5 ræmur beikon
1/2 hvítlauks-, pipar- eða mexíkóostur
4 msk smurostur með beikonbragði
1 1/2 dl mjólk
Aðferð
1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
2. Skerið pylsur og beikon í litla bita.
3. Steikið pylsur og beikon á pönnu við meðalhita í 10 mínútur.
4. Skerið ostinn í bita og bætið á pönnuna ásamt mjólk og smurosti og hrærið vel
þangað til osturinn leysist upp.
5. Blandið saman við nýsoðið pastað og berið fram með brauði.
09.03.2011 13:37
Öskudagur
Nokkrar myndir í albúmi.
Einnig eru fleiri myndir í albúmi hér.
Nemendur af Miðstigi.
- 1
